laugardagur, apríl 17, 2004

Æm still stending je je je!

Án efa lag gærkvöldsins....

Sem sagt, galakvöldið búið og það fór einstaklega skemmtilega fram. Ég tók bekkinn hérna heim í kokteil svona áður en við fórum í matinn. Hér drukkum við freyðivín, spjölluðum og sungum og sumir dönsuðu í tvo tíma. Flestir orðnir líka vel skrautlegir þegar við komum niðrí Versali. Í stuttu máli þá áttum við skemmtunina alla. Frönskusöngurinn sló öll met og medalíurnar sem kennararnir okkar fengu voru æðisleg. Dansinn var stiginn og við kvöddum kennarana okkar með tárin í augunum.
Eftir mikinn dans fórum ég, maríjon og fleiri skólasystkin á Ara í ögri þar sem við héldum áfram að pirra fólk með drykkjulátum.

Ég er ennþá pínu ringluð en -æm still stending je je je- og núna þarf ég að fara að læra menningarfræði. Ég bið ykkur vel að lif, það verður örugglega ekki svo mikið um blogg næsta mánuðinn eða svo.

kv.
Þurí