mánudagur, maí 26, 2008

Það hlaut að koma að því. Jæja ég er fegin að eiga ekki bíl... hlakka til að hjóla og taka strætó í sumar. Orkueyðsla.

Ég er á einhverjum yfirsnúningi í vinnunni og get ekki setið kyrr. Það er svo bjart eitthvað. Allsstaðar.
Mig langar í radísur og svona pínutlitlar glænýjar kartöflur með smjöri. Það er ekki í matinn hérna á spítalanum í dag.

Það var erfitt að vakna í morgun og augun vildu ekki opnast, eeen það tókst. Kl 7... men ég ætla að reyna að hjóla á morgun í vinnuna sem þýðir að ég þarf að vakna... hálf sjö, kannski fyrr... æj ég þarf að reikna út tímann sem þetta tekur allt... svo dömunámskeið.
Á eftir starfsmannanámskeið.

Allt útum allt.

En það er svo bjart!